GAGNAPAKKI: STÓR ORÐ, LÍTIL RÖK OG EKKERT DÆMI UM RANGA TÖLU Gauti B. Eggertsson · júlí 2026 Þessi mappa hefur að geyma opinberan gagna- og endurgerðarpakka fyrir svargreinina „Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu“ (Vísir, júlí 2026). Pakkinn endurgerir myndirnar þrjár í greininni og hverja tölu í texta hennar úr frystum frumgögnum, með einni skipun. TÖLUR GREINARINNAR Í HNOTSKURN Hagvöxtur: greinin vitnar í 2,9% á ári fyrir Ísland og 1,6% fyrir ESB síðustu 10 ár (endurreiknað 2,80/1,61). Á hvern íbúa snýst röðin við: 0,86% á Íslandi en 1,39% í ESB, og Ísland er í 23. sæti af 28 þegar því er raðað með ríkjum ESB. Mynd 1: kaupmáttur launa samkvæmt mælikvarða Áfram Íslands (LCI/SVN), 2013-2025: Ísland +68% (birt tala; endurgerð +67%), ESB +8%, Norðurlönd í ESB +6%. Mynd 2: kaupmáttur árslauna á hvern launþega, raunvirtur með einkaneysluverðvísitölu þjóðhagsreikninga sem tekur reiknaða húsnæðisþjónustu eigenda með, 2007-2025: Ísland +3%, ESB +15%, Norðurlönd í ESB +12%. Mynd 3: sami mælikvarði frá aldamótum, 2000-2025: Ísland +24%, ESB +19%, Norðurlönd í ESB +27%; mælikvarði Áfram Íslands framlengdur til aldamóta sýnir +98%. Reiknuð húsaleiga — liðurinn sem samræmda vísitala neysluverðs (SVN) sleppir — nam 15,6% af allri einkaneyslu árið 2025 samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofunnar (THJ02103); hlutfallið hefur verið 14-16% undanfarin ár. INNIHALD run_all.m Heildarkeyrslan: endurgerir allt úr frystu gögnunum. byggja_gogn.m gogn/hra/ -> gogn/gogn.csv (ein löng tafla). reikna_nidurstodur.m Allir útreikningar -> nidurstodur/*.csv ásamt utreikningar.txt, þar sem hver tala gagnaskrárinnar (gagnaskra.csv) er borin saman við endurreiknað gildi með stöðunni OK eða FRÁVIK. gera_myndir.m Teiknar myndirnar þrjár -> myndir/*.png. afkoda_jsonstat.m Afkóðar JSON-stat 2.0-svör Eurostat og Hagstofu fyrir útreikningana. gagnaskra.csv Gagnaskráin: hver tala greinarinnar, heimild hennar og hvaða stærð er reiknuð. gogn/hra/ Fryst frumgögn (Eurostat, Hagstofa Íslands) ásamt HEIMILDIR.txt með nákvæmum vefslóðum og sóknardagsetningum. ADFERDIR.pdf Aðferðaskjalið: gögn, formúlur, forsendur hverrar myndar og vefslóðir á öll frumgögn. Frumtexti í ADFERDIR.md. checksums_sha256.txt Fingraför (SHA-256-gátsummur) allra annarra skráa útgefna pakkans. Prófið þær áður en run_all er keyrt. ENDURGERÐ Staðfestið útgefna pakkann áður en run_all er keyrt: shasum -a 256 -c checksums_sha256.txt Í MATLAB (R2022a eða nýrra) skal fara í rót pakkans og keyra run_all (eða úr skel: matlab -batch "run_all"). Skriftirnar lesa eingöngu frystu gögnin í gogn/ — engin nettenging, engin gagnaöflun. Keyrslan skrifar gogn/gogn.csv, niðurstöðutöflurnar í nidurstodur/, myndirnar þrjár í myndir/ og prentar í lokin talningu OK/FRÁVIK úr utreikningar.txt. Töluskrárnar endurgerast niður í hvern bita. PNG-myndirnar endurgerast myndrænt, en gátsummur þeirra geta breyst vegna lýsigagna. GÖGN Öll gögn eru frá opinberum frumheimildum (Eurostat, Hagstofa Íslands) og aðgengileg án skráningar; nákvæmar vefslóðir, gagnasafnsheiti, síur og sóknardagsetningar eru í gogn/hra/HEIMILDIR.txt. Engin gögn voru slegin inn handvirkt. Athugasemdir og ábendingar um villur eru vel þegnar.