Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu

Opinber gagna- og endurgerðarpakki · Gauti B. Eggertsson · júlí 2026

Hvað er þetta?

Þessi pakki endurgerir myndirnar þrjár og hverja tölu í svargreininni „Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu“ (Vísir, júlí 2026) úr frystum frumgögnum Eurostat og Hagstofu Íslands — með einni skipun í MATLAB:

run_all

Keyrslan byggir gagnagrunninn (gogn/gogn.csv) úr frystu hráskránum, reiknar niðurstöðutöflurnar í nidurstodur/, teiknar myndirnar þrjár í myndir/ og ber hverja tölu greinarinnar saman við endurreiknað gildi í nidurstodur/utreikningar.txt (staða OK eða FRÁVIK, sbr. gagnaskrána gagnaskra.csv). Engin nettenging, engin gagnaöflun. Sjá LESTU_MIG.txt og aðferðaskjalið ADFERDIR.pdf.

Tölur greinarinnar í hnotskurn

Tala í greinEndurreiknaðHeimild
Hagvöxtur 2,9% ÍS / 1,6% ESB (tala greiningarinnar sem greinin vitnar í)2,80 / 1,61Eurostat nama_10_gdp
Hagvöxtur á mann 0,86% ÍS / 1,39% ESB0,86 / 1,39Eurostat nama_10_pc
Ísland í 23. sæti af 28 í hagvexti á mann23. sætiEurostat nama_10_pc
Mynd 1: 68% / 8% / 6% (2013–2025)+67 / +8 / +6Eurostat lc_lci_r2_q, prc_hicp_midx
Mynd 2: +3% ÍS / +15% ESB / +12% Norðurlönd (2007–2025)+3 / +15 / +12Eurostat nama_10_gdp, nama_10_a10_e
Mynd 3: +24% ÍS / +19% ESB / +27% Norðurlönd (2000–2025); mælikvarði ÁÍ framlengdur +98%+24 / +19 / +27 / +98sömu raðir
Reiknuð húsaleiga: um 15% af allri einkaneyslu undanfarin ár15,6% árið 2025 (bráðabirgðatala; 14–16% undanfarin ár)Hagstofa THJ02103

Myndirnar þrjár

Mynd 1: kaupmáttur launa samkvæmt mælikvarða Áfram Íslands (LCI-launavísitala / samræmd vísitala neysluverðs), 1. ársfj. 2013 = 100. Norðurlönd í ESB: Danmörk, Svíþjóð og Finnland, vegin með fjölda launþega.

Mynd 1

Mynd 2: kaupmáttur árslauna á hvern launþega, raunvirtur með einkaneysluverðvísitölu þjóðhagsreikninga sem tekur reiknaða húsnæðisþjónustu eigenda með, 2007 = 100; mælikvarði Áfram Íslands sýndur til samanburðar.

Mynd 2

Mynd 3: sami mælikvarði frá aldamótum, 2000 = 100; mælikvarði Áfram Íslands framlengdur til aldamóta.

Mynd 3

Allar skrár

Skjöl
LESTU_MIG.txtYfirlit og leiðbeiningar
ADFERDIR.pdfAðferðaskjalið: gögn, formúlur og forsendur hverrar myndar, vefslóðir (frumtexti í ADFERDIR.md)
gagnaskra.csvGagnaskráin: hver tala greinarinnar, heimild hennar og hvaða stærð er reiknuð
checksums_sha256.txtFingraför (SHA-256-gátsummur) allra annarra skráa útgefna pakkans; staðfestið þær áður en run_all er keyrt
Kóði (MATLAB)
run_all.mHeildarkeyrslan — ein skipun endurgerir allt
byggja_gogn.mFryst hrágögn → gogn/gogn.csv
reikna_nidurstodur.mAllir útreikningar → nidurstodur/ + utreikningar.txt (OK/FRÁVIK)
gera_myndir.mTeiknar myndirnar þrjár → myndir/
afkoda_jsonstat.mAfkóðar JSON-stat 2.0-svör Eurostat og Hagstofu fyrir útreikningana
Gögn og niðurstöður
gogn/gogn.csvAllur gagnagrunnurinn í einni langri töflu (svaedi;tidni;timabil;breyta;gildi)
gogn/hra/HEIMILDIR.txtSkrá yfir fryst frumgögn með nákvæmum vefslóðum og sóknardagsetningum
nidurstodur/utreikningar.txtHver tala greinarinnar: reiknað gildi, gildi í grein, vikmörk, OK/FRÁVIK
nidurstodur/hagvoxtur.csvHagvöxtur, hagvöxtur á mann og röðun ríkjanna
nidurstodur/kaupmattur_fjordungar.csvGagnafylki Myndar 1
nidurstodur/kaupmattur_2007.csvGagnafylki Myndar 2
nidurstodur/kaupmattur_2000.csvGagnafylki Myndar 3
nidurstodur/reiknud_husaleiga.csvReiknuð húsaleiga sem hlutfall allrar einkaneyslu
myndir/mynd1_kaupmattur_afram_island.pngMynd 1 (PNG, útkoma MATLAB-keyrslunnar)
myndir/mynd2_kaupmattur_2007.pngMynd 2 (PNG, útkoma MATLAB-keyrslunnar)
myndir/mynd3_kaupmattur_2000.pngMynd 3 (PNG, útkoma MATLAB-keyrslunnar)